Arnarbakki 2-6 - (fsp) breyting á deiliskipulagi
Arnarbakki 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 930
31. ágúst, 2023
Annað
Fyrirspurn
Arnarbakki 2-6 - (fsp) breyting á deiliskipulagi - USK23060008 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. júní 2023 var lögð fram fyrirspurn Byggingarfélags námsmanna, dags. 31. maí 2023, ásamt bréfi Grímu arkitekta og Tendra arkitektur, dags. 30. maí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Arnarbakka 2-6 sem felst í að heimilt verði að fjölga íbúðum án þess að auka byggingarmagn, breyta notkun/koma fyrir leikskóla á jarðhæð Arnarbakka 4, stækka byggingarreit Arnarbakka 4 til austurs til að búa til nægilegt pláss fyrir fjögurra deilda leikskóla og breyta salarhæð húsa og þakhalla. Á lóð 6, samkvæmt uppdr. (grunnmyndir og skuggavarp) Grímu arkitekta og Tendra arkitektur, dags. 30. maí 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. ágúst 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. ágúst 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Arnarbakki 2-6