Hlíðarendi - breyting á deiliskipulagi - Hlíðarendi 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 943
30. nóvember, 2023
Annað
Fyrirspurn
Hlíðarendi - breyting á deiliskipulagi - Hlíðarendi 14 - USK23060006 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Knattspyrnufélagsins Vals, dags. 31. maí 2023, ásamt bréfi, dags. 30. maí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 14 við Hlíðarenda. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta hluta æfingasvæðis á náttúrugrasi í æfingasvæði á gervigrasi með tilheyrandi tæknibúnaði, sem er vestan Arnarhlíðar og Snorrabrautaráss, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta, dags. 14. ágúst 2023. Einnig er lagt fram minnisblað VSÓ ráðgjafar, dags. 30. júní 2023, um áhrif flóðlýsingar gervigrasvallar á nærliggjandi byggð. Tillagan var auglýst frá 28. september 2023 til og með 9. nóvember 2023. Engar athugasemdir bárust. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.