Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
3. Bergstaðastræti 18, BN061841 Sótt er um leyfi til að koma fyrir flutningshúsi á steyptum kjallara,
húsið verður lengt og hækkað, viðbygging á bakhlið stækkuð og byggð ný á austurgafli og til að
innrétta fjórar íbúðir á lóð nr. 18 við Bergstaðastræti. Lagðar eru fram umsagnir Borgarsögusafns
dags. 19. mars 2019, Minjastofnunar Íslands dags. 19. mars 2019 og umsagnir skipulagsfulltrúa dags.
18. október 2021 og 19. janúar 2023. Stærð, A-rými: 340,3 ferm., 915,5 rúmm. B-rými: 6,1 ferm.
Samtals: 358,9 ferm.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera
lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr.
greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði
gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og
skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti
til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.