Fyrirspurn
Bergstaðastræti, milli skólavörðustígs og Laugavegar - göngugata - USK23050235 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2023 var lögð fram yfirlýsing húseigenda og rekstraraðila við Bergstaðastræti, milli Skólavörðustígs og Laugavegar, dags. 19. apríl 2023, þar sem óskað er eftir að sá hluti götunnar verði göngugata. Fyrirspurninni var vísað til skrifstofu samgangna og borgarhönnunar og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 14. september 2023. Vísað til meðferðar verkefnastjóra.