Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. maí 2023 var lögð fram umsókn skrifstofu þjónustu og samskipta, dags. 17. maí 2023, ásamt bréfi Landupplýsinga, dags. 15. maí 2023, um uppskiptingu lóðarinnar Rauðarárstígur 31/Þverholt 18 í tvær lóðir, samkvæmt mæliblaði og breytingarblaði umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. maí 2023. Einnig er lagður fram uppdráttur
Ártúns ehf.
, dags. 12. desember 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir uppskiptingu á lóð, sbr. málsmeðferð skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga, þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en lóðarbreytingin er þinglýst.
Svar
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir uppskiptingu á lóð, sbr. málsmeðferð skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga, þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en lóðarbreytingin er þinglýst.