Úlfarsárdalur - framkvæmdaleyfi -  Skyggnisbraut, Jarpstjörn, Rökkvatjörn, Silfratjörn og Gæfutjörn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 919
15. júní, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2023 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. maí 2023, um framkvæmdaleyfi fyrir heildarfrágangi ofanvatnsrása ásamt gerð gangstétta og útvistarstígs í Úlfarsárdal, nánar til tekið að Skyggnisbraut, Jarpstjörn, Rökkvatjörn, Silfratjörn og Gæfutjörn. Erindinu var vísað til meðferðar  hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2023.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.4 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr.  1051/2022.
Svar