Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. nóvember 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja á tveggja hæða viðbyggingu og sólskála við vesturgafl einbýlishúss á lóð nr. 19 við Framnesveg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Framnesvegi 17, 21, 22A, 22B, 24, 24A og 24B og Öldugötu 52 og 54.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 8.1. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.