Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. nóvember 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 16. nóvember 2023, þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis og/eða forms deiliskipulagsins fyrr en umsagnir Minjastofnunar Íslands og Veitna liggja fyrir um tillöguna og gerð verði grein fyrir þeim mannvirkjum sem fyrir eru á uppdrætti. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt uppdrætti Landmótunar, dags. 21. júní 2023, breyttur eftir auglýsingu, og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 16. janúar 2024.
Lagt fram.