Norðlingabraut 7
Norðlingabraut 7
Síðast Frestað á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. None
30. júlí, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja spenni- og rofastöð á lóð nr. 7 við Norðlingabraut. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí sl. fylgir erindi.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
18. Nökkvavogur 42 - BN061876 Sótt er um leyfi til þess að breyta glugga í hurð og gera svalir á
suðausturhlið íbúðar 0101 með stiga niður í garð tvíbýlishúss á lóð nr. 42 við Nökkvavog.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á teikningu Plús arkitekta og A3 afrit af eldri samþykktum
aðalteikningum.
Með erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. febrúar 2023.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt er að ný
eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við
lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
19. Silfratjörn 1 – USK23040069 Sótt er um leyfi til að byggja tvö steinsteypt fjölbýlishús þriggja og
fimm hæða með kjallara undir mhl. 02, samtals 36 íbúðir, einangruð og klædd að utan, á lóð nr. 1 við
Silfratjörn. Stærð mhl. 01: 2.208,5 ferm., 6.341,6 rúmm. Stærð mhl. 02: 1.286,2 ferm., 3.828,0
rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar vegna sorplausnar dags. 4. apríl 2023, bréf hönnuðar með yfirliti
gagna dags. 11. apríl 2023, hæðar- og mæliblað, varmatapsútreikningar mhl. 01 og 02, greinargerð um
hljóðvist dags. 13. febrúar 2023 og greinargerð brunahönnuðar dags. 13. febrúar 2023.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera
lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr.
greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði
gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og
skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti
til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar
verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um
staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
20. Skildinganes 54 - BN061549 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, þ.e. hringstigi frá svölum
niður í garð og setlaug nærri húsi á suðurhlið, jafnframt er sótt um að klæða útveggi og þak nýrri
veðurkápu, lengja skjólveggi til suðurs og norðurs við hús á lóð nr. 54 við Skildinganes.
Stækkun: 13,7 ferm.Stærð eftir breytingu: 449,0 ferm., 1.468,1 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið afriti teikningar hönnuðar dags. br. 10. október 2022.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.