Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. júní 2023 var lögð fram fyrirspurn SEM samtakanna, dags. 27. apríl 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.179, neðan Sléttuvegar vegna lóðarinnar nr. 3 við Sléttuveg sem felst í að heimilt verði að gera yfirbyggingu úr gleri yfir svalir á 4. hæð hússins út frá samkomusal (samþykkt deiliskipulag heimilar yfirbyggingu yfir hluta svala), samkvæmt uppdr. Mannvirki Malbik dags. 13. apríl 2023. Samþykkt deiliskipulag heimilar yfirbyggingu yfir hluta svala. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.