Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2023 var lögð fram fyrirspurn Reynis Kristinssonar, dags. 26. apríl 2023, ásamt greinargerð, ódags., um annars vegar að koma fyrir gestahúsi austan við núverandi íbúðarhús að Kjalarnesi, Völlum og hins vegar að koma fyrir smábýli tengt skógræktarsvæði vinstra megin við núverandi heimreið að Kjalarnesi, Völlum 2. Einnig eru lagðar fram yfirlitsmyndir, ódags., sem sýna fyrirhugaðar staðsetningar. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. júní 2023.
Neikvætt, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. júní 2023.