Kjalarnes, Prestshús - nýtt deiliskipulag - SN210265 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 10. febrúar 2023, þar sem gerð er athuga
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 920
22. júní, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 10. febrúar 2023, þar sem gerð er athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þar sem staðsetning byggingarreits B4 uppfylli ekki ákvæði skipulagsreglugerðar um fjarlægð frá vatni/sjó sbr. gr. 5.3.2.14. Einnig bendir stofnunin á nokkur atriði sem þarf að lagfæra eða skýra betur. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Stjórnarráðs Íslands, dags. 4. maí 2023, um ákvörðun ráðuneytisins um að veita undanþágu frá ákvæði gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júní 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júní 2023, samþykkt.