Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2023 var lögð fram umsókn Guðmundar Gunnarssonar, dags. 26. apríl 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 52 við Hlaðhamra. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er byggingarreitur á lóð undir leikskóla, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Urban Arkitekta, dags. 25. maí 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaðilum að Sporhömrum 10-12.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.