Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn THG arkitekta, dags. 26. apríl 2023, um breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða eystri vegna lóðarinnar nr. 7 við Höfðabakka. Í breytingunni sem lögð er til felst að hækka vesturhluta núverandi húss um eina hæð, samkvæmt uppdr. THG arkitekta dags. 19. apríl 2023. Erindi var samþykkt í grenndarkynningu (grenndarkynning hefur ekki átt sér stað) og er nú lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdráttum
THG arkitekta ehf.
, deiliskipulag- og skuggavarpsuppdr., dags. 7. nóvember 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. nóvember 2023 til og með 29. desember 2023. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.