Fyrirspurn
Hólmsheiðarvegur 151 - breyting á deiliskipulagi - USK23040131 Lögð fram umsókn VA arkitekta ehf., dags. 18. apríl 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hólmsheiðar Landsnets vegna lóðarinnar nr. 151 við Hólmsheiðarveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur I er færður til og honum snúið ásamt því að lögun reitsins er breytt og hann minnkar. Heimilt verður að byggja á reitnum geymsluhúsnæði. Byggingarreitur II er stækkaður til norðurs og austurs, en áformað er að núverandi grófvörugeymsla sem stendur innan reitsins í dag geti stækkað til austurs ef þörf krefur. Einnig er gert ráð fyrir því að bæta við bygginguna til norðurs . Auk þess mun byggingarreitur ná yfir útigeymslusvæði og olíuskilju sem stand utan reitsins í dag. Gerður er nýr byggingarreitur, byggingarreitur V, þar sem heimilt verður að reisa þrjár byggingar yfir núverandi tengivirki. Bílastæði verða færð til og þeim komið fyrir norðar á lóðinni. Byggingarreitir III og IV verða óbreyttir, samkvæmt uppdr. VA arkitekta, dags. 18. apríl 2023, síðast breyttur 20. september 2023. Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.