Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
8. Granaskjól 12 - BN061364 Sótt er um leyfi til að reisa bílgeymslu úr forsteyptum einingum með
einhalla hefðbundnu timburþaki í norðaustur horni lóðar við hús á lóð nr. 12 við Granaskjól.
Stækkun: 32,0 ferm., 112,0 rúmm.
Erindi fylgir afrit umsagnar skipulagsfulltrúa vegna fyrirspurnar dags. 26. apríl 2018, uppfært
eyðublað umsóknar dags. 28. nóvember 2022, bréf umsækjanda vegna samþykki eigenda, dags. 28.
nóvember 2022, afrit álits kærunefndar húsamála, mál nr. 74/2020 og afrit óundirritaðrar
eignaskiptayfirlýsingar dags. janúar 2015.
Erindi var grenndarkynnt frá 29. mars til og með 4. maí 2023. Engar athugasemdir bárust.
9. Grundargerði 11 - BN061828 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum, þ.e. niðurgrafin
steypt kartöflugeymsla vestan við núverandi bílgeymslu, jafnframt er sótt um leyfi til að stækka
bílgeymslu, mhl. 02, um er að ræða síkkun á undirstöðum og gera kjallara, aðgengi verður um tröppur
vestan við núverandi skúr við hús á lóð nr. 11 við Grundargerði.
Stækkun: xx,x ferm., xx,x rúmm.
Stærð eftir breytingar: 85,2 ferm., 216,3 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2023 og lögð fram umsögn
skipulagsfulltrúa dgas. 27. október 2022.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis.
Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á
verkið né ábyrgðaraðilar.