Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júlí 2023 þar sem sótt er um leyfi til að breyta íbúðum á 2. hæð, færa svalir, og færa geymslur frá íbúðum niður í kjallara, auk þess að fella fjórðu hæðina út af umsókninni í húsi nr. 27-29 við Snorrabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. september 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. september 2023, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. september 2023, samþykkt.