Frestað. Vísað til athugasemda.
11. Depluhólar 4 - BN061601 Sótt er um leyfi til að breyta útliti á húsi og skipulagi lóðar, þ.e. tröppur
upp á svalir felldar út, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð í stað glugga á suðausturhlið, gluggar
síkkaðir og komið fyrir hurð á suðvesturhlið, lóð lækkuð, bætt aðgengi og umferðarleiðir innan lóðar
og að húsi, steypt setlaug og stoðveggir á lóðarmörkum húss á lóð nr. 4 við Depluhóla. Erindi fylgir
umboð eiganda dags. 6. október 2022, bréf eiganda, rökstuðningur vegna breytinga dags. 11. október
2022, samþykki aðliggjandi lóðarhafa nr. 2 við Depluhóla og nr. 1 við Erluhóla. Erindi fylgir yfirlit
breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 12. júlí 1984. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 20. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2023. Erindi fylgir samþykki nágranna,
skjalfært þann 17. apríl 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. maí 2023, fylgir erindi