Háskóli Íslands, Vísindagarðar - breyting á deiliskipulagi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 926
3. ágúst, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða. Í tillögunni sem lögð er til felst stækkun skipulagssvæðis utan um nýja lóð sem fær bókstafinn N, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta ehf., dags. 28. mars 2023. Tillagan var auglýst frá 16. júní 2023 til og með 28. júlí 2023. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Veitna, dags. 25. júlí 2023.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.