Hraunberg 5 - breyting á hverfisskipulagi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 952
8. febrúar, 2024
Samþykkt
‹ 47
48
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Icecard ehf. , dags. 11. apríl 2023, um breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hverfi 6.3 Efra Breiðholt, vegna lóðarinnar nr. 5 við Hraunberg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipta lóðinni upp í tvær jafn stórar lóðir og gera bílageymslu/vinnustofu að einbýlishúsi. Auk þess verða viðbyggingarmöguleikar 40 fm fyrir hvora lóð og bílastæði tvö á hvorri lóð, samkvæmt uppdr. Studio F - arkitekta, dags. 3. október 2023. Erindið var auglýst frá 30. nóvember 2023 til og með 17. janúar 2024. Engar athugasemdir bárust. Breytingin var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar sl. en þar sem misfórst að uppfæra dagsetningu uppdráttar (auglýstur uppdráttur) hér í málstexta er erindi nú lagt fram að nýju með uppfærðri dagsetningu.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.