Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
31. Iðunnarbrunnur 15 - BN060509 Sótt er um leyfi til þess að byggja staðsteypt tvíbýlishús á tveimur
hæðum og kjallara að hluta á lóð nr. 15 við Iðunnarbrunn.
Stærðir: 340.1ferm., 967.9 rúmm.
Nýtingarhlutfall; 0.95.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 24. janúar 2022. hæðablað 2.693.4, útg. B3, dags. september 2009,
mæliblað 2.693.4 dags. 28. febrúar 2020, Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa frá 13. maí 2022, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022. Einnig fylgir
bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. maí 2022.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5
og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við
lóðarhafa aðliggjandi lóða. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.