Frestað. Vísað til athugasemda.
8. Bíldshöfði 2 - BN061693 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi rýmis 0101 að hluta, þ.e.
fyrirkomulag og innréttingar verslunar og lagers, komið fyrir nýjum rekstri veitingasölu í stað þess
sem áður var, í flokki I, teg. c, veitingastofa og greiðasala, ný uppþvottaaðstaða, óbreytt fyrirkomulag
starfsmannaaðstöðu sem er samnýtt í matshluta nr. 01, í húsi á lóð nr. 2 við Bíldshöfða.
Erindi fylgir: Yfirlit breytinga unnið á afriti samþykkts aðaluppdráttar erindis BN037859.