Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2023 var lögð fram umsókn Guðrúnar Rögnu Yngvadóttur, dags. 30. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hólalands á Kjalarnesi.Í breytingunni sem lögð er til felst að refahúsin á lóðinni verða rifin og gerður er nýr byggingarreitur lóð sem mun rúma þrjú færanleg hús, samkvæmt uppdr, Ask arkitekta, dags. 29. mars 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. og 12. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1051/2022.