Lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 28. mars 2023, um framkvæmdaleyfi fyrir nýja stofnlögn hitaveitu, Suðuræð II. Þegar hefur verið veitt framkvæmdaleyfi fyrir þeim hluta lagnarinnar sem fylgir Breiðholtsbrautinni, frá Elliðaám að lokahúsinu við Suðurfell en sá hluti lagnarinnar er hluti af framkvæmd Vegagerðarinnar við breikkun Breiðholtsbrautar og mislæg gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Umsókn þessi á við þann hluta lagnarinnar, þar sem hún þverar Elliðaár og tengingu þessarar nýju lagnar við Suðuræð 1, norðan Breiðholtsbrautar. Einnig eru lögð fram frumdrög Landslags, dags. 21. mars 2023, uppdráttur Verkís, grunnmynd og snið, dags. 14. október 2022 síðast yfirfarinn 14. mars 2024, yfirlitsmynd Verkís, dags. 10. september 2021 síðast yfirfarin 15. október 2021, minnisblað Verkís um flóðahættu, dags. 27. mars 2024, svarpóstur Skipulagsstofnunar til Veitna, dags. 20. október 2021, um að framkvæmdin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, umsagnir helstu hagsmunaaðila og myndir af Suðuræð II við Breiðholtsbrú. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. maí 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 23. maí 2024. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.