Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Axels Kaaber, dags. 24. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar - Örfiriseyjar vegna lóðarinnar nr. 1 við Grandagarð. Í breytingunni sem lögð er til felst tilfærsla umferðarréttar svo hægt sé að koma fyrir bílastæðum við vesturenda lóðarinnar, samkvæmt uppdr. Axels Kaaber arkitekts og Birkis Ingibjartssonar arkitekts dags. 24. mars 2023. Einnig er lagt fram samþykki Faxaflóahafna, dags. 16. mars 2023.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.