Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. júní 2023 var lögð fram umsókn Fasteigna Háskóla Íslands ehf., dags. 24. mars 2023, ásamt bréfi THG arkitekta, dags. 19. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna lóðarinnar nr. 2 við Sæmundargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er reitur fyrir óupphitað, hálfopið reiðhjólaskýli á bílastæði norðvestan við aðalbyggingu Háskólans, samkvæmt uppdr. THG arkitekta, dags. 10. mars 2023. Einnig er lögð fram tillaga THG arkitekta að upphituðu reiðhjólaskýli. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. a. liður 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1224/2022, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.