Frestað. Vísað til athugasemda.
8. Barmahlíð 51 - BN060964 Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir nýrri hurð, grafa frá og gera verönd
við suðurhlið íbúðar 0001 í íbúðarhúsi á lóð nr. 51 við Barmahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda á afriti af teikningu A-101 dags 7. apríl 2022 umsögn
burðarvirkishönnuðar dags. 17. janúar 2023 og
yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 10. apríl 2001.
9. Depluhólar 4 - BN061601 Sótt er um leyfi til að breyta útliti á húsi og skipulagi lóðar, þ.e. tröppur
upp á svalir felldar út, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð í stað glugga á suðausturhlið, gluggar
síkkaðir og komið fyrir hurð á suðvesturhlið, lóð lækkuð, bætt aðgengi og umferðarleiðir innan lóðar
og að húsi, steypt setlaug og stoðveggir á lóðarmörkum húss á lóð nr. 4 við Depluhóla.
Erindi fylgir umboð eiganda dags. 6. október 2022, bréf eiganda, rökstuðningur vegna breytinga dags.
11. október 2022, samþykki aðliggjandi lóðarhafa nr. 2 við Depluhóla og nr. 1 við Erluhóla. Erindi
fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 12. júlí 1984. Útskrift úr
gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 20. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2023. Erindi fylgir samþykki nágranna,
skjalfært þann 17. apríl 2023.
Dragháls 14-16 - USK23040030 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar ásamt því að
stækka núverandi millipalli og fjarlægja annan millipall innan sömu hæðar fyrir Stoð sem verður þar
með verslun, verkstæði, lager og skrifstofu í húsi á lóð nr. 14-16 við Dragháls.
Stækkun: 221,4 ferm.
Erindi fylgir greinagerð brunahönnuðar dags. 11. janúar 2023