Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, dags. 8. mars 2023, ásamt bréfi, dags. 8. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 1 við Kalksléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar til norðvesturs, samkvæmt uppdr.
Alark arkitekta ehf.
, dags. 8. mars 2023. Erindið var grenndarkynnt frá 29. ágúst 2023 til og með 26. september 2023. Eftirfarandi sendu umsögn: Veitur, dags. 25. september 2023.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.