Sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki II, teg. d fyrir 40
gesti á þriðju hæð þannig að alls verður gististaður fyrir 220 gesti í Heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 47
við Barónsstíg. Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.