Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. apríl 2023 var lögð fram fyrirspurn DAP ehf., dags. 4. mars 2023, um breytingu á hverfisskipulagi Ártúnsholts vegna lóðarinnar nr. 9 við Straum sem felst í stækkun lóðarinnar, hækkun á nýtingarhlutfalli og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt tillögu DAP, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júlí 2023, samþykkt.