Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2023 var lögð fram umsókn Sigurðar Sigurbjörnssonar, dags. 3. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr 42. við Nökkvavog. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að setja svalir á húsið með tröppum niður í garð, 1.8 metra út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. Plús arkitekta, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Nökkvavogi 38, 40, 44 og 46. Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. og 12. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.