Tröllaborgir 14
Tröllaborgir 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1212
24. júní, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að fjölga eignum og byggja einnar hæðar steinsteypta viðbyggingu við norðurgafl íbúðar 0102 með þaksvölum fyrir íbúð 0201 í íbúðarhúsi á lóð nr. 14 við Tröllaborgir. Stækkun: 36.6 ferm., 98.8 rúmm. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa og yfirlit breytinga á afritum af eldri samþykktum aðaluppdráttum. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2023 fylgir erindi.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5
og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við
lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu
byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.