Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
22. Grundargerði 28 - BN060059 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057455 þannig að hætt er við
viðbyggingu á suðausturgafli og gerður nýr inngangur með útistiga á sama gafli á húsi á lóð nr. 28 við
Grundargerði. Ný stækkun: 88,8 ferm., 250,0 rúmm. Minnkun frá fyrra erindi: 49,8 ferm., 93,1
rúmm.Eftir stækkun: 168,1 ferm., 538,1 rúmm.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henniverði þinglýst eigi
síðar en við lokaúttekt. Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
23. Gullslétta 14 - BN061776 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN037975 þannig að tekið er niður
skyggni og bætt við gluggum á austur gafli og innri breytingar á húsi á lóð nr. 14 við Gullsléttu.
Stækkun: 56,7 fermetrar.
Erindi fylgir samþykki Eignarskrifstofu dags. 06.01.23.
24. Hafnarstræti 1-3 - BN061676 Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN059102, þannig að hætt er við
eldhús og breytt er innra skipulagi veitingarstaðarins í fl. III, tegund f, sem er samþykktur fyrir 80
gesti í rými 0105 í húsi á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti. Erindi fylgir greinagerð brunahönnuðar dags.
13. október 2022.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.