Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
24. Hallveigarstígur 1 - BN060827 Sótt er um leyfi til að breyta notkun 3. hæðar úr skrifstofu í gististað
án veitinga, í flokki II, teg. b., stærra gistiheimili, með níu herbergi fyrir 18 gesti á 3. hæð sem er
viðbót við þau fjögur herbergi sem fyrir eru á 4. hæðinni, samtals 13 herbergi í húsi á lóð nr. 1 við
Hallveigarstíg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta erindis BN057663 og afgreiðslubréf
skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2022.. BN060827
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.