Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN058735 með síðari
breytingu BN059583 þannig að sorpskýli ,mhl.04, er breytt í opið sorpskýli auk þess sem bætt er við
tveimur nýjum sorpskýlum, sorpgeymsla í kjallara mhl.01 er fjarlægð og í staðinn gerðar sérgeymslur
fyrir íbúðir, rýmisnúmerum er breytt og skráningartafla uppfærð til samræmis fyrir fjölbýlishús, mhl.01,
jafnframt er skipt um utanhússklæðningu á mhl.01 og mhl.02 á lóð nr. 143 við Hraunbæ.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði varðandi staðföng matshluta dags. 13. febrúar 2023 og yfirlit breytinga á
aðalteikningum samþykktum 7. september 2021.