Laugavegur 11
Laugavegur 11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1205
18. apríl, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að síkka glugga og setja svalir á austurhlið og breyta notkun úr lager í skrifstofu í rými 0301, í húsi á lóð nr. 11 við Laugaveg. Erindi fylgir greinargerð hönnunarstjóra, dags. 1. febrúar 2023 og 3. febrúar 2023, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2023, yfirlit breytinga. Erindið var afgreitt á fundi skipulagsfulltrúa 23. mars sl. - Afgreiðsla: Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.