Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að gera kvisti á austurþekju húss, hækka
handrið svala 1. og 2. hæðar og breyta innra skipulagi íbúða 0201 og 0301 í íbúðarhúsi á lóð nr. 17 við
Hávallagötu.
Stækkun: 0.0 ferm., 1.3 rúmm.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á afriti teikningar Sei studío dags. 29. janúar 2023 og yfirlit
breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 24. febrúar 1955.