Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf., dags. 23. janúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vallár á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga stæðum fyrir fugla í húsunum í samræmi við kröfur um aðbúnað alifugla, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 23. janúar 2023. Einnig lagt fram bréf hönnuðar, dags. 23. janúar 2023. Tillagan var auglýst frá 11. apríl 2023 til og með 26. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Íbúaráð Kjalarness, dags. 21. apríl 2023.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.