Fyrirspurn
Laugavegur 176 - (fsp) breyting á deiliskipulagi - USK23010245 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. janúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Yrkis arkitekta ehf., dags. 18. janúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Laugavegar, Bolholts, Skipuholts vegna lóðarinnar nr. 176 við Laugaveg sem felst í stækkun á þakhæð hússins samkvæmt tillögu Yrkis arkitekta, dags. 17. janúar 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. febrúar 2023. Neikvætt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. febrúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa Laugavegur 176