Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
9. Grandagarður 16 - BN060972 Sótt er um leyfi til að gera glugga, nýja inngangshurð og breyta innra
skipulagi þannig að hluti af rýmum 0104 og 0105 eru sameinuð í eitt rými og innréttuð vinnuaðstaða á
upphækkuðu gólfi, starfsmannaaðstaða og verkstæði fyrir starfsmenn nýrrar hafnarvogar sem komið
verður fyrir í gryfju við suðvesturhlið húss á lóð nr. 16 við Grandagarð.
Erindi fylgir skýringarskjal vegna skráningartöflu dags. 22. maí 2022 og yfirlit breytinga á A3 afriti af
samþykktum teikningum.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2022 fylgir erindi, ásamt
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2022.
Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. júní 2022.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.