Elliðaárvogur/Ártúnshöfði - Svæði 2A - Deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 956
7. mars, 2024
Annað
‹ 40
41
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að deiliskipulagi fyrir Elliðaárvog/Ártúnshöfða, svæði 2A. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af núverandi Ártúnshöfða til austurs, Elliðaám til vesturs og Stórhöfða (Borgarlínu) til suðurs. Til norðurs afmarkast deiliskipulagssvæðið út frá lóðamörkum sem afmarka lóð Sævarhöfða 12. Svæðið er um 5,48 ha að stærð og þar sem gert er  ráð fyrir íbúðum og blandaðri byggð ásamt tilheyrandi nærþjónustu. Heildarfjöldi íbúða á skipulagssvæðinu er 582.  Tillagan er lögð fram í samræmi við eftirfarandi gögnum skipulagsráðgjafa: ARKÍS arkitektar og LANDSLAG. Verkfræðiráðgjöf: VERKÍS. Almennri greinargerð fyrir svæði 2 (og svæði 1); Sértækri greinargerð fyrir byggingar og lóðir á svæði 2A; deiliskipulags-  og skýringaruppdrætti, dags. 6. mars 2024. Einnig er lögð fram Hönnunarhandbók fyrir opin svæði, inngarða og almenningsrými, dags. 4. júní 2021, unnin af Landslagi, samgöngumat Verkís, dags. júní 2021, Húsakönnun fyrir Ártúnshöfða svæði 1-4, dags. apríl 2021, hljóðvistarskýrsla Verkís, dags. maí 2021, umhverfisskýrsla Verkís, dags. maí 2021, og mengunarrannsókn Verkís, dags. maí 2020.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.