Fyrirspurn
Hólastekkur 8 - (fsp) stækkun - USK23010186 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Ívars Haukssonar, dags. 16. janúar 2023, ásamt greinargerð, ódags, um stækkun hússins á lóð nr. 8 við Hólastekk sem felst í að loka að hluta yfirbyggðu porti og breyta því í geymslu og að stofa á 1 hæð verði stækkuð þannig að byggt verði í innskoti sem er til staðar í dag, samkvæmt uppdr. dags. 30. desember 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023, samþykkt. Samræmist heimildum í hverfisskipulagi. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa Hólastekkur 8