Samþykkt.
32. Kleifarvegur 12 - Breytingar kjallara - garðskáli 1.hæð - BN061567 Sótt er um leyfi til að breyta
innra skipulagi í kjallara, baðherbergi er endurnýjað og stækkað og garðskála er komið fyrir
undir svölum 1. hæðar húss á lóð nr. 12 við Kleifarveg.{Stækkun: 31,7 ferm., 73,1 rúmm. Erindi
fylgir umboð eiganda íbúðar 01-0101 dags. 29. september 2022, samþykki í formi áritunar á
smækkað afrit aðaluppdráttar dags. 29. september 2022, afrit fundargerðar húsfélags dags.
16. október 2022. og yfirlit breytinga unnið á afrit aðaluppdrátta erinda BN057778 og
BN058529. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20.
október 2022 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 18. október 2022 og bréf skipulagsfulltrúa
dags. 21. október 2022. Gjald kr. 13.200. BN061567
33. Klettagarðar 7 - BN061673 Sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarhús, verkstæði/lager, með
aðliggjandi skrifstofuhluta á tveimur hæðum á báðum endum, á lóð nr. 7 við Klettagarða. Erindi
fylgir umsögn brunahönnuðar dags. 24. október 2022. Stærð: 1.890,1 ferm., 14.090,2 rúmm.
34. Kuggavogur 2 - BN060984 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN058761, fjölga matshlutum,
innra skipulagi kjallara og bílakjallara breytt og fjölga bílastæðum um þrjú, jafnframt er um að
ræða hliðrun á einstökum gluggum og innréttingum í húsi á lóð nr. 2 við Kuggavog.
Stærð: + 5,0 ferm., -834,5 rúmm.
Mhl. 01 - Súðarvogur 3 (hús E): 19 íbúðir, 2.175,1 ferm., 6.490,1 rúmm.
Mhl. 02 - Dugguvogur 13 (hús A): 21 íbúðir, 2.584,5 ferm., 7.661,6 rúmm.
Mhl. 03 - Dugguvogur 11 (hús B): 15 íbúðir, 1.507,7 ferm.,4.834,0 rúmm.
Mhl. 04 - Dugguvogur 9 (hús C): 22 íbúðir, 2.599,4 ferm., 7.758,1 rúmm.
Mhl. 05 - Kuggavogur 4 (hús D): 4 íbúðir, 1.654,8 ferm., 5.007,0 rúmm.
Mhl. 06 - Kuggavogur 2 (Bílakjallari): 2.457,0 ferm., 7.758,1 rúmm.
Mhl. 07 - Kuggavogur 2a (Djúpgámar): 40,0 ferm.,149,3 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga í kjallara unnið á afrit grunnmyndar samþykkt þann 23. febrúar
2021.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á
byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing
byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
35. Laufásvegur 18 - BN061526 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, þ.e. í kjallara er
uppfærð skráning, eldhús fært, innréttað svefnherbergi, í bakhúsi er innra skipulagi breytt,
gólf hækkað í rými 0001 en lækkað gólf og breytt notkun úr geymslu í vinnustofu með eldhúsi
í rými -101 og gerðar nýjar tröppur niður í vinnustofu í húsi á lóð nr. 18 við Laufásveg. Stærð:
xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar, endurnýjun á byggingarleyfi BN055012
dags. 20. september 2022. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti teikninga hönnuðar dags.
31. október 2022 og yfirlit breytinga unnið á útgefnum aðaluppdrætti erindis BN028953. Gjald
kr.13.200. BN061526
36. Langholtsvegur 115 - BN060077 Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir fyrstu hæðar á
vesturhlið húss á lóð nr. 115 við Langholtsveg. Stækkun er: 11,7 ferm., 30,5 rúmm.Erindi fylgir
útgefið mæliblað dags. 23. september 2005. Samþykki meðeigenda dags. 27. október 2021.
Erindi fylgir bréf hönnuðar vegna frávika frá gildandi deiliskipulagi og athugasemdum SHS
dags. 20. janúar 2022. Gjald kr. 12.100. BN060077
37. Laugavegur 147A - BN061556 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, m.a. er gerð grein
fyrir áður gerðri íbúð í risi fjölbýlishúss á lóð nr. 147A við Laugaveg.
Erindi fylgir húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 1. desember 2022. bréf hönnuðar dags. 23.
september 2022, samþykki meðeigenda dags. 16. desember 2006, afsal dags. 14. desember
1983, afsal dags. 8. desember 1981og afsal dags. 8. ágúst 1986. Gjald kr. 13.200. BN061556
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki
er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna
breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.