Ármúli 9
Ármúli 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1202
21. mars, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að gera gat í eldvarnarvegg á lóðarmörkum, opnun inn í byggingu á lóð nr. 7 á 1. hæð og í efri kjallara, loka gati í gólfi milli 1.hæðar og kjallara, auk þess eru rými 0101, 0150 og 0152 innréttuð fyrir verslun í húsi á lóð nr. 9 við Ármúla. Stækkun: 76,8 ferm. Stærð matshluta eftir breytingar: 9.213,9 ferm., 31.802,8 rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á útgefnum aðaluppdráttum erindis BN059482. Erindi tengt USK22122941 vegna opnun eldvarnarveggja yfir lóðarmörk, hæðar- og mæliblað, greinargerð brunahönnuðar dags. 16. mars 2023, bréf hönnuðar dags. 13. febrúar 2023.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Sérstakt
samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Með vísan til
samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi
síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og
skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp
skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt
umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til
staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en
þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Þinglýsa
skal kvöð um tímabundna opnun yfir lóðarmörk áður en byggingarleyfi er gefið út.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103518 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006718