Ármúli 7
Ármúli 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1199
21. febrúar, 2023
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbyggingu, sameina matshluta nr. 04 inn undir matshluta nr. 01 og breyta byggðu húsnæði á fjórum hæðum auk kjallara nærri götu fyrir rekstur læknamiðstöðvar, steinsteypt mannvirki einangrað og klætt að utan með léttri plötu- og glerklæðningu, í húsi á lóð nr. 7 við Ármúla. Stærð mhl.01 eftir breytingu: 5.286,4 ferm., 19.600,3 rúmm. Erindi fylgir hönnunar- og verkáætlun dags. 23. ágúst 2022, greinargerð brunahönnuðar, útg. 1.0, dags. 12. desember 2022. Erindi fylgir Niðurrif matshluta nr. 02 í erindi USK23010154, samþykkt þann 7. febrúar 2023. Gjald: 14.000.
Svar

Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
4. Bergstaðastræti 18 BN061841
Sótt er um leyfi til að koma fyrir flutningshúsi á steyptum kjallara, áður Bergstaðastræti 7,
húsið verður lengt og hækkað, viðbygging á bakhlið stækkuð og byggð ný á austurgafli og til
að innrétta fjórar íbúðir á lóð nr. 18 við Bergstaðastræti.
Lagðar eru fram umsagnir Borgarsögusafns dags. 19. mars 2019, Minjastofnunar Íslands
dags. 19. mars 2019 og umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2021 og 19. janúar
2023. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2023 fylgir erindi.
Stærð, A-rými: 352,8 ferm., 941,4 rúmm.
B-rými: 6,1 ferm.
Samtals: 358,9 ferm.