Lautarvegur 36
Lautarvegur 36
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1204
4. apríl, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt endaraðhús á tveimur hæðum auk kjallara, grafið er frá kjallara suðaustan megin og þar komið fyrir verönd sem tengd er með stiga meðfram vesturhlið bílgeymslu, á lóð nr. 36 við Lautarveg. Stærð: 380,6 ferm., 1.197,3 rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar, erindi BN057707 dregið til baka, svör við athugasemdum dags. 8. febrúar 2023, afrit endurnýjun starfsábyrgðartryggingu hönnuðar dags. 1. nóvember 2022, bréf byggingarfulltrúa vegna slit á starfsábyrgðartryggingu hönnuðar dags. 15. desember 2022, gátlisti aðaluppdrátta og hæðar- og mæliblað.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5
og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við
lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013,
skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
17. Maríubaugur 1 - BN061690 Sótt er um leyfi til að reisa glervegg milli fata- og inngangsrýmis og
veitingasal og útveggir sem áður voru múrhúðaðir klæddir sléttri hvítri álplötuklæðningu á húsi á lóð
nr. 10 við Maríubaug.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti samþykktra aðaluppdrátta erindis BN027139.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.