Lynghagi 20
Lynghagi 20
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1208
9. maí, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir stakstæðri bílgeymslu á einni hæð með einhalla timburþaki, steinsteyptur útveggir á lóðarmörkum, aðrir eru léttbyggðir með standandi timbur klæðningu, matshluti nr. 02, við hús á lóð nr. 20 við Lynghaga. Stærð: 56,0 ferm., 158,8 rúmm. Erindi fylgir samþykki eigenda dags. 3. desember 2022 og útgefið mæliblað 1.554.1. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á gildandi aðaluppdrætti samþ. þann 30. júlí 1953 og umsögn skipulagsfulltrúa erindis SN220668, dags. 24. nóvember 2022. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. maí 2023 fylgir erindi.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við
lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu
byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.