Fyrirspurn
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 17. október 2024 og 24 október 2024.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Vegna neikvæðrar afgreiðslu á fyrirspurn vegna Bergþórugötu 29 er undirritaður á þeirri skoðun að það er almennt jákvætt ef íbúðum er fjölgað með því að skipta stærri eignum í minni. Hér var sótt um að breyta einni íbúð yrði í tvær þannig að innra skipulagið yrði það sama og á hæðinni fyrir neðan. Þótt vissulega megi hafa til hliðsjónar ákvæði Aðalskipulags Reykjavíkur um fjölbreytt íbúðarform eiga þau ákvæði endilega ávallt að vega þyngra en þau skýru markmið um fjölgun íbúða sem borgin hefur sett sér.