Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 327
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram svar við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um endurnýjun á endurvinnslustöðvum sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. nóvember 2022. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Það er varla boðlegt að svara fyrirspurn tveimur árum eftir að hún er borin fram. Samræmist það góðum stjórnsýsluháttum? Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram 3 spurningar sem varða endurnýjun á endurvinnslustöðvum. Spurt var hver mun borga endurnýjun endurvinnslustöðva? Samkvæmt fylgiskjölum er hér um stórmál að ræða og veruleg gjaldskrárhækkun væntanleg vegna þess. Í svari kemur fram að vísa á áformum um nýja endurvinnslustöð við Lambhagaveg og leiðir til fjármögnunar til staðfestingar hjá eigendavettvangi Sorpu. Svar við spurningu 2 um hvort það stefni í neyðarástand ef ekki verður hægt að urða í Álfsnesi eins og komið hefur fram í fundargerð kemur fram að neyðarástandi hefur verið forðað þegar flokkun hófst við upprunastað og hefur urðun því minnkað. Loks var spurt, er rétt að ekki sé gert ráð fyrir stofnfjárframlögum frá eigendum á árunum 2023-2027? Í svari segir að það sé rétt sem fulltrúi Flokks fólksins las í rekstraráætlun Sorpu fyrir árin 2023-2027, ekki var gert ráð fyrir stofnfjárframlögum frá eigendum á árunum 2023-2027. Í rekstraráætlun Sorpu fyrir árin 2025-2029 er heldur ekki gert ráð fyrir stofnfjárframalögum frá eigendum. Svo virðist því sem að notkunargjöld eigi að standa undir rekstri og uppbyggingu Sorpu.