Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 327
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sbr. fundargerð borgarstjórnar 20. september 2022, 6. liður, um að stemma við hraðakstri bifhjóla á göngu- og hjólastígum. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 14. nóvember 2024. Umhverfis- og skipulagsráð leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Lagt er til að bjóða samgöngustofu og fulltrúum lögreglu á fund ráðsins til að ræða meðal annars hvernig hægt er að bregðast við hraðakstri léttra bifhjóla á stígum með fræðslu eða öðrum leiðum.
Svar

Samþykkt
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að stemma við hraðakstri bifhjóla á göngu- og hjólastígum samþykkt svo breytt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Samkvæmt umferðarlögum er bannað aða aka rafmagnshlaupahjólum (rafskútum), sem komast hraðar en 25 kílómetra á klukkustund, eftir stígum borgarinnar. Mikil brögð eru að því að brotið sé gegn þessu banni og bifhjólum ekið þar langt yfir umræddum hámarkshraða. Slíkt háttalag skapar mikla hættu enda hafa nú þegar orðið alvarleg slys á stígunum þar af völdum hraðaksturs. Brýnt er að borgaryfirvöld bregðist þegar í stað við þessari hættu og grípi til viðeigandi aðgerða samkvæmt tillögu Sjálfstæðisflokksins. Umsögn samgöngustjóra ber hins vegar með sér að hann telji ekki ástæðu til slíkra aðgerða. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að ekki sé í boði að aðhafast ekkert í þessu alvarlega máli. Brýnt er að skýrar merkingar um 25 kílómetra hámarkshraða vélknúinna farartækja verði settar upp við stígana þannig að sú staðreynd verði bifhjólamönnum ljós. Slíkar merkingar hafa verið settar upp við stíga í Garðabæ og gefið góða raun. Einnig er mikilvægt að Reykjavíkurborg ráðist í fræðsluátak um þessi mál í grunnskólum sínum. Þá er æskilegt að borgin óski eftir því að umferðareftirlit lögreglu verði hert á göngu- og hjólastígum til að stemma stigu við slíkum hraðakstri. Fyrirliggjandi tillaga Sjálfstæðisflokksins var flutt í borgarstjórn 20. september 2022 eða fyrir rúmum tveimur árum og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Slíkur dráttur á afgreiðslu tillögu er óviðunandi.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tekið er undir að stemma þarf stigu við hættulegum hraðakstri bifhjóla á göngu- og hjólreiðastígum borgarinnar, sem og á gangstéttum. Bæta má merkingar um hámarkshraða léttra bifhjóla. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður minnst á mikilvægi þess að setja fræðslu um reglur á hjólastígum (hjólakennslu) inn í skólana og hefur verið vel tekið í það. Fulltrúa Flokks fólksins finnst einnig mikilvægt að hjólastígar séu flokkaðir eftir öryggi þeirra og gæðum þannig að hægt sé að skoða á netinu hvaða hjólastígar væru öruggir og hverjir jafnvel hættulegir. Víða eru stígar blandaðir, hjóla- og göngustígar sem eru upphaflega hannaðir sem göngustígar. Þá þarf að lagfæra til að þeir verði öruggir fyrir bæði hjólandi og gangandi. Ef ekki er vöntun á rými á skilyrðislaust að breikka stígana. Áhyggjur eru af fjölgun slysa þeirra sem nota lítil vélknúin farartæki. Rafhlaupahjól eða öllu heldur rafskreppur eins og betra er að kalla þessi farartæki hafa verið bannaðar í sumum borgum t.d. París. Þar sem rafskreppur eru leyfðar verður að vera meira regluverk í kringum þær og skoða af alvöru að setja aldurstakmark á þær t.d. að fólki yngra en 18 ára verði óheimilt að fara um á skreppum, nái þær meira en 25 kílómetra hraða.